Baggalútur hefur hleypt af stokkunum sérstakri atkvæðavél sem úthlutar atkvæðum óákveðinna kjósenda af handahófi og fyrir hreina tilviljun. Vill hann með þessu móti leggja sitt af mörkum í kosningabaráttunni og aðstoða þá fjölmörgu sem skilja hvorki upp né niður í þeirri einsleitu kosningabaráttu sem nú stendur yfir.
Kjóstu hér.
Síðuna má einnig nálgast á slóðinni kosningar.com
Vélmenni
128K HOME-SABER 2000 vélmenni með uppvasks- og ryksugunaruppfærslu fæst keypt gegn sanngjörnu verði eða í skiptum fyrir asíska unaðsdúkku. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.