Frétt — Enter — 7. 4. 2003
Leynifundur Samfylkingar heppnast vel
Nýr einkennisklæðnaður flokksins mæltist vel fyrir.

Leynilegur vorfundur Samfylkingarinnar fór fram um helgina og heppnaðist að sögn aðstandenda vel þrátt fyrir að því miður hafi ekki tekist að halda honum leyndum fyrir formanni flokksins.

Meginstefna flokksins var staðfest, en hún felst í að "..fella núverandi ríkisstjórn og sjá svo bara til." Að öðru leyti var í meginatriðum stuðst við stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, "..enda óþarfi að skrifa biblíuna upp á nýtt," eins og Ingibjörg Sólrún orðaði það.

Að lokum var svo einróma samþykkt að Davíð Oddsson væri leiðinlegur.

Taða

til sölu. Sími 3341.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: