Húbert Albertsson, einstæðingur, hefur hannað og reist fyrstu ferðastjörnusambandsstöðina hér á landi og sennilega í heiminum öllum. Með henni vonast hann til að ná sambandi við aðrar lífstjörnur - "...en bara litlar, til að ná sambandi við hinar stærri þyrfti stöðin að vera úr gegnheilu kóbalti - ekki bara kóbalthúðuð...", eins og hann segir sjálfur.
Húbert ferðast nú um landið í leit að hentugum "tengipunktum" - en hann hyggst jafnvel fara með stöðina til Noregs og Færeyja með Norrænu í sumar - þar sem massi gjörkosmískra meigineinda er einna þéttastur.
Lífstykkin komin!
Einnig fáanlegt: nýru af nýslátruðu, pennaveski og hljómplötunálar.
Frímerkjabúðin.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.