Frétt — Enter — 3. 4. 2003
Vonsvikinn bankaræningi
Ræninginn var meir að segja búinn að láta sérsauma á sig fangabúning.

Hafnfirskur bankaræningi, sem rændi Sparisjóð Hafnafjarðar á dögunum, hafði samband við Baggalút og lýsti yfir verulegum vonbrigðum með frammistöðu lögreglu í máli hans.

Hann kveðst hafa reiknað með því að öðlast frægð og frama með ráninu, en sér nú fram á að hann verði jafn óþekktur og áður. Hann segist reiðubúinn að koma til móts við lögreglu með því að afhenda þeim hárlokk af sér og ýmsa persónulega muni í þeirri von að það muni flýta rannsókn málsins.

"..það má segja að ég hafi gert mistök með því að treysta á að skósmiðurinn myndi þekkja mig aftur og eins hélt ég að þessar myndavélar væru miklu betri," sagði ræninginn og viðurkenndi einnig að nælonsokknum hefði verið ofaukið.

Flugmóðurskip

lítið notað til sölu. Skipti á sparneytnum smábíll koma til greina.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: