Frétt — N?mi Fannsker — 14. 2. 2003
Frelsaðist í Smáralind
Kjartan hrópar í hvívetna: "Týr sér guði", ekki er enn vitað hvaða guði Týr sér að mati Kjartans.

Athafnamaðurinn og heildsalinn Kjartan Bjartmarz varð fyrir nokkuð sérstakri lífsreynslu á dögunum er hann frelsaðist í lyftu í Smáralind. Að sögn sjónarvotta var Kjartan nýstiginn inn í lyftuna, á uppleið, og virtist sem eitthvað væri fast í tönnum hans, þar sem hann saug úr þeim ótt og títt. Þegar lyftan var komin vel á skrið fleygði hann sér í gólfið og hrópaði: "Hallelúja! Týr sér guði!", sem þótti einkennilegt þar sem Týr var heiðið goð skv. norrænni goðafræði.

Kjartani heilsast eftir atvikum vel og eyðir nú öllum sínum stundum í lyftunni þar sem hann blessar þá sem inn í hana stíga.

Femínisti

óskast til að dansa í einkasamkvæmi. Gott kaup.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: