Frétt — N?mi Fannsker — 28. 1. 2003
Gífurleg aðsókn í ættfræðigrunninn Grjóna!
Tölvuklasinn sem keyrir ættfræðigrunninn Grjóna samanstendur af um 215 vélum.

Gífurleg aðsókn hefur í dag verið í ættfræðigrunninn Grjóna sem Baggalútur hleypti af stokkunum í morgun. Ekki hefur komið til teljandi tæknilegra vandkvæða vegna þessa, enda tölvubúnaður Baggalútssamsteypunnar af fullkomnustu gerð.

Reyndar hafa um 2000 athugasemdir borist vegna meintra gagnavillna, en í engum tilfellum hefur leiðréttinga verið þörf.

Smjörklípur

af öllum stærðum, með og án salts. Nást seint og illa úr fatnaði. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: