Frétt — N?mi Fannsker — 15. 1. 2003
Stöðumælaverðir komnir í vetrarbúning
Sérsveit stöðumælavarða klæddist felubúningnum við hátíðlega athöfn í morgun

Stöðumælaverðir í Reykjavík klæddust í morgun vetrarbúningi, en hann er hvítur sem snjór og því hentugur fyrir þá sem vilja láta fara lítið fyrir sér í fannfergi.

Hinsvegar hafa margir bent á að þá sjaldan snjó festir í Reykjavík, sé hann alls ekki hvítur, heldur mitt á milli þess að vera brúnn og svartur. Fulltrúar stöðumælavarða hafa hinsvegar bent á að búningarnir verði fljótt samlitir snjónum þegar þeir sem klæðast þeim hafa öslað tjargaðan saltelginn í miðbænum.

Þófabrekán

Eigum fyrirliggjandi fáein úrvals þófabrekán. Ýmsir litir. Ýmsar stærðir.

Brekánbúðin.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: