Hannes Hilmarsson Cand.Mag. hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sivjar Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra.
Ráðningin var kynnt á blaðamannafundi í morgun. Hannes hefur víðtæka reynslu af mengunar- og förgunarmálum, einkanlega úr heilbrigðisgeiranum.
"Hannes er fulltrúi breyttra starfshátta hér í umhverfisráðuneytinu og aukinnar áherslu á árangurstengda gæðastjórnun", sagði umhverfisráðherra á fundinum.
Gamlárspartý
hjá okkur. Allir velkomnir. Óli & Dorritt.
BYOB!
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.