Frétt — Enter — 18. 11. 2002
S-hópurinn festir kaup á Búnaðarbankanum
S-hópinn skipa ýmsar ofurhetjur úr íslensku og færeysku viðskiptalífi.

Einkavæðingu ríkisbankanna er nú lokið með sölu Búnaðarbankans til S-hópsins svokallaða.

Raddir eru uppi um að að stjórnarflokkarnir hafi skipt bönkunum á milli sín, en forsætisráðherra vísar því á alfarið á bug: "..finnst þér líklegt að framsókn fengi helming ef við værum að skipta þessu? Ég held nú ekki." sagði hann hlæjandi í rabbi við Baggalút.

Leðurhommar til sjávar og sveita!

Leðurjakkar, leðurbuxur, leðurstígvél, leðurpeysur, leðursokkar, leðurtreflar.
Verslunin Kjörver

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: