Sveinbjörn Benediktsson, skrifstofumaður, vann það afrek í gær að gera við eldhúsvask á heimili sínu án þess að nokkur, hvorki kona hans né stálpuð dóttir, bæði hann um það.
"..hann bara stóð allt í einu upp frá sjónvarpinu og fór fram í eldhús, byrjaði á því að vaska dálítið upp, en tók svo til við að þétta lekann, sem hefur verið að aukast smám saman síðustu 12 árin," sagði kona Sveinbjarnar, en hún var enn í miklu sjokki.
Afrekið er enn meira í ljósi þess að leikur í meistaradeild Evrópu var í fullum gangi á sama tíma.
Læknadóp
Magnyl! Strepsils! Paracetamol! Benylin! B-Vítamín! Vics! Bonjela! Viox! Acenton! Íbúfen!
Boggi dálkur - Hlemmi
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.