Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, vann fádæma sigur í prófkjörsslag helgarinnar. Hann hlaut glæsilega kosningu í prófkjöri Samfylkingarinnar á Suðurlandi, en bauð sig reyndar fram í Norðvesturkjördæmi - fyrir sjálfstæðisflokk.
"Já, því er ekki að neita að ég er ótvíræður sigurvegari þessa prófkjörs - ég er óumdeilanlegur leiðtogi sunnlenskra jafnaðarmanna! Hinsvegar verð ég að viðurkenna að það eru náttúrulega viss vonbrigði að lenda í nýjum flokki - en svona er lýðræðið, þetta er einfaldlega vilji fólksins", sagði Sturla við blaðamann í morgun og bætti við: "Svo er ég ekki alveg að nenna að flytja maður - úff".
Dvergar!
Skemmtilegu smábarnafötin eru komin aftur. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.