Olíufélögin hafa ákveðið samhljóða að hækka verð á eldsneyti frá og með deginum í dag. Er þetta í 200. sinn á árinu sem eldsneytisverð hækkar og er sérstaklega gleðilegt að sjá hverju samhugur og bróðurþel meðal fyrirtækja í samkeppni getur áorkað, en takmarkið í ár var aðeins 180 hækkanir.
Ástæður hækkunarinnar nú eru El Nino veðurfyrirbærið, fullt tungl, ástandið í Baskalandi og hitastig sjávar.
Af nýslátruðu
Eigum fyrirliggjandi mikið af mávi eftir flugeldasýninguna á Menningarnótt. Kjötvinnsla Reykjavíkurborgar.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.