Íslensk erfðagreinining hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að fyrirtækið hyggist snúa tapi í hagnað á næstu 3 mánuðum. Að sögn Páls Magnússonar, fyrrverandi upplýsingafulltrúa ÍE, er ætlunin að auka hagnað með sölu á skrifstofubúnaði, hreinlætisvörum og afgangsmat. "Já mér skilst að þeir ætli að græða alveg bönsj á þessu, enda eiga þeir nóg af dóti. ", sagði Páll í óformlegu spjalli við uppljóstrara Baggalúts fyrr í dag. Haldinn verður útsölumarkaður í höfuðstöðvum ÍE í næstu viku og munu vera bílastæði fyrir allt að 200 manns.
Stúlka
óskast nú þegar til að annast um heimsþekkt, franskt karlmódel í vikutíma. Frönskukunnátta ekki nauðsyn. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.