Frétt — N?mi Fannsker — 13. 9. 2002
Smíðaði sitt eigið heyrnartæki
Vegna umfangs síns og þyngdar er búnaðurinn staðbundinn, enn sem komið er

Jósep Gústavsson, rafeindavirki, hefur þjáðst af heyrnarskorti á vinstra eyra um nokkurt skeið. Afar dýrt er að kaupa heyrnartæki og bið eftir þeim löng. Hann brá því á það ráð að smíða sér sjálfur heyrnartæki úr heimilistölvunni.

"Jú það er rétt, ég smíðaði þetta sjálfur niðri í geymslu. Búnaðurinn er náttúrulega staðbundinn, enn sem komið er, en þetta er nú bara prótótýpa", sagði Jósep í æsispennandi viðtali við blaðamann Baggalúts.

Helgarpabbi

óskast til að gæta 7 ára drengs aðra hverja helgi. Þarf að vera ca. 180 cm á hæð og með mikið svart skegg. Góð þekking á húsdýragarðinum og helstu ísbúðum æskileg. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: