Frétt — Enter — 22. 8. 2002
'Ljóti kallinn' gefur sig fram við lögreglu
Böðvar reyndist svo alls ekkert ljótur eftir allt saman

Lögreglan á Ísafirði hefur staðfest að Böðvar Úlvarsson, heildsali, sé í raun 'Ljóti kallinn'. Böðvar, sem búsettur er í Hnífsdal, gaf sig sjálfur fram í gærmorgun og lagði fram óyggjandi sannanir fyrir því að hann væri í raun 'Ljóti kallinn', þ.á.m. ljósmynd sem tekin var síðasta sumar þar sem hann er ásamt jólasveininum og Jóhannesi í Bónus í Bláa Lóninu.

Fjölmargar kvartanir hafa borist lögreglu vegna 'Ljóta kallsins' á umliðnum árum, sér í lagi frá leikskólabörnum, en þeim hefur aldrei verið sinnt.

Skreytifíklar

Skemmtilegu blikkandi hurðarhúnarnir eru komnir aftur. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: