Frétt — N?mi Fannsker — 14. 8. 2002
Íslenskur kexhönnuður hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
Sigurjón útskýrir hönnun sína

Sigurjón Proppé, kexhönnuður var verðlaunaður á hugvitssýningunni FoodBiz 2002 í Sofiu í Búlgaríu í morgun. Verðlaunin hlaut hann fyrir afar nýstárlega hönnun í kremkexflokki, en hann hefur þróað kex úr svokölluðum kóbalttrefjum. Kexið er enn sem komið er of hart til neyslu, en sé það látið liggja í sýrubaði í 5- 10 mínútur er það vel ætt. Sigurjón hyggst einnig kynna nýja tegund krems á sýningunni, svokallað 'nikkelkrem'.

Tölvupóstur!

Tek að mér að bera út tölvupóst fyrir einstaklinga og fyrirtæki. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: