Útgáfubækur
J.K. Rowling

Út er komin samtalsbókin Tengdamamma Andskotans. Í bókinni ræðir metsöluhöfundurinn J.K. Rowling við Esther Moussaieff, tengdamóður lýðveldisins.

Hispurslaus frásögn örvæntingarfullrar móður sem lifir af hörmungar seinna stríðs til þess eins að horfa svo á eftir dóttur sinni í klær Andskotans.

Virkilega góð bók með stóru letri og helling af myndum sem afsannar svo sannarlega að móðir Harry Potters sé haldin ritstíflu.

Leiðbeinandi verð: 52.000 kr. (við minnum á afsláttarkortin)
Brot:
17 kapítuli - Upphaf endalokanna

Hvernig varð þér við þegar dóttir þín tók saman við Ólaf?

Á dauða mínum átti ég von en ekki að hún færi að draga heim þennan íslenska trúð. Hún hefur alltaf farið sínar eigin leiðir hún Dorrit mín, en ég hélt að hún væri vaxin uppúr þessu. Og þetta hár...GUÐ minn góður !

Þannig að þér var ekki skemmt?

Nei, alls ekki! Hún hefur svo sem alltaf verið svona stelpan, dragandi heim vængbrotna fugla og þesslags. Hún er bara OF góð í sér. Skilurðu?

Já, ég held það frú.

Já, þú ert eflaust ágætlega skynsöm þrátt fyrir nefið.

Takk.

Hún Dorrit hefur aldrei getað horft uppá nokkuð aumt án þess að vilja hjálpa því. Og trúðu mér að hann Ólafur er aumingi. Þrátt fyrir að hann sé alltaf að sprikla í einhverri leikfimi þá verður hann móður af því einu að bera fram af borðinu.
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA