Keðjusagarmorðingjar
Nú þarf enginn að láta hátt eldsneytisverð trufla tómstundirnar. Vorum að fá nýja sendingu af rafknúnum keðjusögum í ýmsum stærðum og litum. -Byggsmiðjan
Pennavinur
Vil gjarnan skrifast á við stelpur á aldrinum 16-20 ára. Er sjálfur á 32. ári. A.v.á.
Kona óskast
þrifaleg kona óskast nú þegar - þarf ekki að vera falleg. A.v.á.
Aumingjar!
Við breytum ykkur í hesttanaða elgmassaða kalla á innan við fjórum árum!
Líkamsræktarstöðin Púlver
Api
28 kg. api fæst gefins. Bítur. Fast. A.v.á.
Reykvíkingar
ekki gleyma að gefa ógæfumönnunum. Þeir eru jafn ósjálfbjarga að sumri til, ólíkt smáfuglunum.