Tapað fundið
Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.
Jarðarbúar athugið
Á þriðjudaginn kl. 17 munum við taka yfir plánetuna ykkar og drepa ykkur öll. Leifar ykkar verða notaðar sem áburður fyrir risastóra tómatinn sem við dýrkum sem guð. - Marsbúarnir
Frá Vinnumálastofnun
Fallegu dömublússurnar komnar. Margir litir. Næg bílastæði.
Barnabox
Foreldrar, nú þurfa litlu englarnir að læra að slá frá sér. Erum að skrá í alla aldursflokka. Opið er fyrir veðmál alla daga frá 8.00 og fram að bardaga kl. 19.30.
Munum eftir bankamönnunum
Nú er hart í ári hjá litlu bankamönnunum, sem eru vanir sífeldu góðæri síðan þeir klöktust út úr háskóla. Við mælum með að þeim sé gefið bankabygg, sem má nálgast í kjörbúðum.
Bankamannavinafélagið
Athafnamenn!
Vinsælu vélritunarnámskeiðin hefjast í næsta mánuði. Fingrasetning, uppsetning verslunarbréfa og margt fleira.
Tómstundaskóli Einars