Til sölu
lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.
Tónleikahaldarar athugið!
Erum að taka við bókunum. Ekkert of bissí ennþá. Verðum bráðum komnir með söngvara.
Tommy Lee.
Burðardýr
vantar til að flytja morfín og kólalauf til meginlands Evrópu. Þurfa að hafa aðgang að eigin bifreið. Ágæt þóknun. Afgr. vísar á.
Tek að mér að skemmta í barnaafmælum, grillveislum og erfisdrykkjum. Hef meðferðis eigin kareókí græjur af fullkominni gerð. Sanngjörn þóknun.
Megas.
Karlkyns sjáandi
með gott samband við ríflega 100 lífstjörnur óskar eftir að komast í samband við góða, skilningsríka konu á miðjum aldri. Má gjarnan reykja.
Allt fyrr perrann!
Perrajakkar, perrabuxur, perraskór, perrasokkar.
Perragarðurinn.