Skrípó
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Gefins!

Nokkrir pokar af regnvatni. Á sama stað fæst einnig gefins talsvert af mosa.
A.v.á.

Starfskraftur óskast

Vanur viðskipta- eða hagfræðingur óskast til að hafa yfirumsjón með endurskipulagningu lítils hagkerfis. Þarf að hafa hreina sakaskrá og vera læs og talandi á ensku og eitt norðurlandamál. Um tímabundna ráðningu er að ræða.
Viðskiptaráðuneytið

Allt í íslenska kúrinn

Flot, garnir, mör og appelsín.

Kjörbúðin Karítas

Saurfíklar athugið!

Kynngimögnuðu krypplingafóstrin komin aftur – einnig fyrirliggjandi mikið af notuðum panel (ATH. ekki kanil).

Uppistöðulón

ónotað, fæst gefins. Lekur. Afgreiðsla vísar á.

Frímúrarar!

Orgía í kvöld! Fjölmennum.
Nefndin

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA