Tenórarnir komnir
gott úrval - ýmsar stærðir.
Hljóðfæraverzlun Sigvalda
Húshjálp
Óska eftir að ráða útrásarvíking eða sbr. til að aðstoða við létt heimilisstörf og viðrun seníls gamalmennis. Gott kaup.
Hvítþvottur
Nærðu ekki blóði hinna saklausu úr jakkafötunum? Láttu okkur um að hvítþvo mannorð þitt.
Þvottahús Ming Li Fu
„Amma“ óskast
í skiptum fyrir vel með farinn móðurbróður. Á sama stað fást ljúffengir nýgotnir blendingshvolpar. Getum úrbeinað fyrir þá sem vilja.
a.v.á.
Kennitöluflakkarar
Mikið af skemmtilegum og töff nöfnum að losna. Kynnið ykkur úrvalið. Fyrirtækjaskrá.
Leiðrétting
Misritað var í áður birtri auglýsingu að um helgina væru "Krakkdagar í Smáralind".
Rétt er að um helgina eru "Krakkadagar í Smáralind".