Flakkarar
Ný sending af flökkurum. Mikið geymslurými. Haldi frá áfengi og heimasætum. A.v.á.
Tilkynning frá Herjólfi
Ég er hættur að elska.
Kv.
H
Gefðu jólagjöf sem gleður!
Tek að mér að ráða af dögum tengdamæður og eiginkonur. Athugið geðveiku jólatilboðin á www.leigumord.is.
Elli - s. 4983215
Þjóðarbú
Vorum að fá í einkasölu, fallegt þjóðarbú. Á besta stað, miðsvæðis á Atlantshafi. Búið þarfnast töluverðs viðhalds og fæst gegn yfirtöku skulda. Eigna- og hárþvottamiðstöð Snúlla og Dúlla.
Tapað
tvö karton af auðguðu úrani töpuðust fyrir utan skemmtistaðinn Óliver aðfararnótt laugardags. Finnandi er vinsamlegast beðinn að snúa sér til íranska konsúlsins á Íslandi.
Atvinna óskast
Vanur ljónatemjari óskar eftir atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Get hafið störf nú þegar. A.v.á.