Leðurhommar til sjávar og sveita!
Leðurjakkar, leðurbuxur, leðurstígvél, leðurpeysur, leðursokkar, leðurtreflar.
Verslunin Kjörver
Til sölu
Tveir fallegir verðlaunagripir úr lituðu gleri og steini. Lítið notaðir. Ritstj. Baggalúts.
Atvinna
Lykilstjórnendur óskast. Engin vinna – frábært kaup. A.v.á.
Karlhóra
óskar eftir að kynnast góðri, skilningsríkri konu. Helst reyklausri.
Reykvíkingar
ekki gleyma að gefa ógæfumönnunum. Þeir eru jafn ósjálfbjarga að sumri til, ólíkt smáfuglunum.
Exibisjónistar
Njótið þess að strippa án þess að þurfa að niðurlægja ykkur með því að þiggja fyrir það greiðslu. Fyrir okkur strippa allir frítt! Hestamannafélagið Blesi.