Útfrymi
Þarf vegna lífstjörnuflutninga að losa mig við mikið magn útfrymis. Tilboð óskast.
Gísli miðill.
Pabbi þarf að vinna
Köntrískífan Pabbi þarf að vinna er komin í verslanir okkar. Ath. vegna gífurlegrar eftirspurnar er aðeins boðið upp á eina skífu á mann - konur og börn ganga fyrir.
Karnabær.
Töfralæknir
óskast í sérverkefni. Þarf að geta hafið störf nú þegar. Afgreiðsla vísar á.
Fakír
óskar eftir að komast í kynni við reyklausa, geðprúða konu á fertugsaldri. þarf að hafa reynslu af nálastungum og nokkuð sterkar taugar.
Atvinna óskast
Miðaldra maður óskar eftir atvinnu við afgreiðslustörf, ljónatamningar eða innheimtu. A.v.á.
Til sölu
Rauður kafbátur. 20 manna. Ekinn 18.000 sjómílur. A.v.á.