Saurfíklar athugið!
Kynngimögnuðu krypplingafóstrin komin aftur – einnig fyrirliggjandi mikið af notuðum panel (ATH. ekki kanil).
Miðaldra marbendill
óskar eftir að leigja herbergi á Höfuðborgarsvæðinu. Skilvísum greiðslum heitið. Þarf að hafa gott aðgengi að baði.
Ráðvilltur og reiður?
Upphafssíður í miklu úrvali. Gular, rauðar, grænar og dökkbláar. Internet Villa, Korputorgi.
Ég býð upp á tannlækningu, ókeypis! Vantar fólk að æfa mig á vegna tveggja vikna námskeiðs. Einar Zöega, B.A.
Ný sending
Kúamjólkin vinsæla komin í verslanir okkar.
Kjörval
Hvítþvottur
Nærðu ekki blóði hinna saklausu úr jakkafötunum? Láttu okkur um að hvítþvo mannorð þitt.
Þvottahús Ming Li Fu