Loðfíll
Uppstoppaður loðfíll til sölu. Mjög vel með farinn. A.v.á.
Vonbiðlar athugið
Biðilsbuxurnar sívinsælu komnar! Margir litir.
Fataverzlunin Popplín - Hafnarfirði
ÞINGMENN!
vorum að fá nýja sendingu af jogginggöllum og hlýrabolum. Verið þægilega klæddir í þinginu.
Verzlun Ingvars.
Vantar þig gjaldeyri?
Eigum slatta af erlendri mynt sem fáanleg er gegn vægu gjaldi. Skilyrði er að gjaldeyriskaupendur kafi sjálfir eftir myntinni.
-Þingvallanefnd-
Ukuleleleikarar
Tek að mér stillingar á G, A og E - strengjum. Fullum trúnaði heitið.
A.v.á.
Tölvupóstur!
Á fyrirliggjandi tölvupóst frá Jónínu, Styrmi, Megasi, Ingólfi Guðbrands, Helga P. og Hófí. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Dúbbi.