Söngnám
Tek að mér einkakennslu í karókísöng. Hef víðtæka reynslu, bæði úr Ölveri, Singstar og Ædolinu. A.v.á.
Foreldrar: Eyðið tíma með börnum ykkar
Mótmælaaðgerðir eru kjörið tækifæri til samveru barna og foreldra. Ráðumst saman á lögguófétin og björgum þannig börnunum frá drykkju og slæmum félagsskap.
Lýðveldisheilsustöð
Stúlka
Siðprúð, reyklaus stúlka óskast til að sjá um heimili sjö útivinnandi dverga. Mjög mikilvægt er að hún geti farið að einföldum fyrirmælum. A.v.á.
Til sölu!
Vegna flutninga: Þvagleggur (2 m, gagnsætt plast), stómapoki (4 lítra - sem nýr) og reiðhjólapumpa (þarfnast viðgerða). Tilboð óskast. Áhugasamir snúi sér til afgreiðslu.
Nærgætin
stúlka óskast á gott heimili í Vesturbænum. Þarf að hafa reynslu af umönnun og umhirðu urðarkatta.
Aðventukrans
Til sölu fallegur aðventukrans með fjórum rauðum kertum, greni og tveimur heillegum könglum. Hefur verið notaður með hléum frá árinu 1989.