Síðasti séns!
Eigum enn fyrirliggjandi ýmsan erlendan munaðarvarning. Næsta sending væntanleg haustið 2012.
Kringlan
Aðventukrans
Til sölu fallegur aðventukrans með fjórum rauðum kertum, greni og tveimur heillegum könglum. Hefur verið notaður með hléum frá árinu 1989.
Krónur
Nú fer hver að verða síðastur að trygga sér krónurnar vinsælu, síðasta prentun á þrotum, aðeins er vona á einni til viðbótar.
Seðlabankinn – meira og minna í hálfa öld.
Atvinna óskast
Vanur ljónatemjari óskar eftir atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Get hafið störf nú þegar. A.v.á.
Tapað fundið
Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.
Hnífasett
áf öllum stærðum og gerðum. Henta vel til hvers konar innbyrðis átaka. A.v.á.