Saurfíklar athugið!
Kynngimögnuðu krypplingafóstrin komin aftur – einnig fyrirliggjandi mikið af notuðum panel (ATH. ekki kanil).
Gefins
Kassavanur dvergur. Á sama stað er til sölu casio tölvuúr (ódýrt).
A.v.á.
Aðventukrans
Til sölu fallegur aðventukrans með fjórum rauðum kertum, greni og tveimur heillegum könglum. Hefur verið notaður með hléum frá árinu 1989.
Prestar!
Terlínhempur, terlínkragar, terlínskikkjur, terlínkuflar.
Terlín & Guð - Laugavegi
Grafskrift óskast
þarf að vera hnitmiðuð, dapurleg, en um sjúklega fyndin. A.v.á.
Ukuleleleikarar
Tek að mér stillingar á G, A og E - strengjum. Fullum trúnaði heitið.
A.v.á.