Til sölu!
Vegna flutninga: Þvagleggur (2 m, gagnsætt plast), stómapoki (4 lítra - sem nýr) og reiðhjólapumpa (þarfnast viðgerða). Tilboð óskast. Áhugasamir snúi sér til afgreiðslu.
Skaufhali
Vel með farinn gulur skaufhali fæst fyrir lítið. Á sama stað fæst einnig heilleg lydda og lítill röndóttur froðusnakkur. Afgreiðsla vísar á.
Umskiptingur
óskar eftir góðu heimili. Afgreiðsla vísar á.
Lamadýr
Höfum fengið í einkasölu nokkur lamadýr. Þrír litir: engifergult, mógrátt og hvítt. Skipti koma til greina - verða þó að vera nýleg klaufdýr.
Bílasalan Bílver
Gott á grillið
Grillaðir útrásarvíkingar á silfurfati. Fyrstir koma, fyrstir fá.
E.H.
Gefins prentari
Vandaður prentari fæst gefins. Reykir ekki. A.v.á.