Skrípó
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Enter – 17.02.20
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Nauðungaruppboð

Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).

Tapað fundið

Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.

Verðbréfasalar

munið námskeið í lófa- og garnalestri og bollaspádómum, annað kvöld kl. 15. Allt að fyllast.

Til sölu

Til sölu fallegur Range Rover, árgerð 2008 ekinn 2km. Skipti á bleiu koma til greina.

Gefins prentari

Vandaður prentari fæst gefins. Reykir ekki. A.v.á.

Njósnarar

ný sending af blásýruhylkjum komin. Negul-, vanillu- og möndlulykt. Margar stærðir. Fullum trúnaði heitið.
Njósnavöruverslun Stefáns og Báru

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA