Loðfíll
Uppstoppaður loðfíll til sölu. Mjög vel með farinn. A.v.á.
Tapað
tvö karton af auðguðu úrani töpuðust fyrir utan skemmtistaðinn Óliver aðfararnótt laugardags. Finnandi er vinsamlegast beðinn að snúa sér til íranska konsúlsins á Íslandi.
Ódýrt!
Dúnmjúk og seiðandi vasaló. Hentar í allar gerðir vasa. Næg bílastæði.
O. Bergmann & Wium.
Einkamál
karlmaður á sjötugsaldri óskar ekki eftir að kynnast neinum. Allra síst með nánari kynni í huga. Þið getið bara fokkað ykkur. A.v.á.
Stúlku
vantar til morgunverka hjá öldruðum tvíburabræðrum. Greitt eftir sérstöku samkomulagi. Afgr. vísar á.
Tek að mér
að prenta út fyrir fólk. A4 eða minna. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.