Vélmenni
128K HOME-SABER 2000 vélmenni með uppvasks- og ryksugunaruppfærslu fæst keypt gegn sanngjörnu verði eða í skiptum fyrir asíska unaðsdúkku. A.v.á.
Vesturbæingar athugið
Glúónur, bósónur, gravitónur! Ferskar og ilmandi.
Sparkaup.
Víkingar!
Nokkrir hressir víkingar óskast í fyrirhugað strandhögg við England og Frakkland í nóvember. A.v.á.
Þófabrekán
Eigum fyrirliggjandi fáein úrvals þófabrekán. Ýmsir litir. Ýmsar stærðir.
Brekánbúðin.
Til sölu
Lítið notað sveitarfélag á Langanesi. Áhugasamir hafi samband við afgreiðslu.
Huliðshjálmur
óskast keyptur fyrir lítið, eða í skiptum fyrir vel með farna sjömílnaskó.