Til sölu
Tveir fallegir verðlaunagripir úr lituðu gleri og steini. Lítið notaðir. Ritstj. Baggalúts.
Páfi
óskast í afleysingar. Nánari upplýsingar gefur upplýsingafulltrúi Vatíkansins á Íslandi.
Borgarlögmenn
óskast til að veita ráðgjöf á öllum sviðum borgarmála. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.
Nauðungaruppboð
Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).
Flugmóðurskip
lítið notað til sölu. Skipti á sparneytnum smábíll koma til greina.
Gylta!
Já Málfríður, þú ert gylta. Reynir.