Lesbók17.11.02 — Myglar

Þegar ég kom hingað til London til að vitja Dr. Herberts hélt ég að þetta yrði einungis venjuleg sendiför. Ég bjóst kannski við því að finna hann langdrukkinn, genginn í sértrúarsöfnuð ellar að störfum með einhverjum hættulegum pólitískum samtökum, en það sem ég fann var annað og meira.

Mér tókst að sannfæra leigusala hans um að hleypa mér inn í herbergiskytru Herberts í Kensington og þar inni blasti við mér undarlegasta samansafn tóla og tækja sem ég hef séð. Ég er sannfærður um að hann er að vinna að einhverskonar gereyðingarvopni. Ég beið síðan uns hann kom heim og fylgdi honum eftir það sem eftir var dagsins - í dulargerfi að sjálfsögðu.

Ég skrifa meira um leið og ég hef tíma, en mér sýnist að hann sé að legga af stað aftur út Buckingham höll.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182