Lesbók06.12.02 — Númi Fannsker

Í gærkvöld var hulunni svipt af þeim "bókmenntaverkum" sem tilnefnd eru til íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár. Skemmst er frá því að segja að hin íslenska bókmenntaelíta kaus að sniðganga bókaútgáfuna Baggalút enn einu sinnu. Algerlega var litið framhjá Stórvirkjum eins og Blóðskömm og Á rottugangi í flokki fagurbókmennta og afrekið Indland - land fávitans, í flokki fræðibóka, var ekki virt viðlits.Ég mætti sem fulltrúi útgáfunnar, en eftir fimmtu áfyllingu á freyðivínið var mér orðið nokkuð sama um hver fengi hvaða verðlaun. Ég stikaði því á Hótel Borg, þar sem ég eyddi því sem eftir var kvölds í félagi við þýskan lyfsala -eða kryddkaupmann- sem svaraði nafninu Schtephan af einhverjum ástæðum. Í morgun nagaði svo samviskan mig þar sem enginn var viðstaddur til að taka við túlípönum úr örmum blómarósarinnar skeggjuðu - Sigurðar Svavarssonar. Því rak mig í rogastans er ég sá tilnefningarnar í Morgunblaðinu. Ekki ein einasta fyrir verk útgefið af Baggalúti! Engin! Núll!Nú er það svo, eins og lesendur Baggalúts þekkja vel, að skjólstæðingar og starfsmenn bókaútgáfunnar Baggalúts hafa á þessu ári, sem endranær, ritað fleiri og mun merkari bókmenntaverk en allir þeir höfundar sem nokkru sinni hafa verið tilnefndir til þessara bitlinga bókmenntaelítunnar - samanlagt! Eftilvill væri ráð að prenta út vef Baggalúts í heild sinni og gefa út fyrir næstu útnefningu að ári, til viðbótar við þann mikla fjölda bóka sem bíða útgáfu (ég nefni sem dæmi: Tilbrigði við ost e. Gunnar P. Gunnarsson, Blæbrigði túndrunnar e. Frosta Hraunvík og Guð gaf mér síma e. Stefán Bjarman). Þær nefndir sem skipaðar voru yfirdómstóll bókmenntaelítunnar að þessu sinni hafa kveðið upp dóm sinn - aftaka sannra bókmennta skal það vera og upphafning markaðsskrumsins. Þessu trúði ég svosem upp á alla sem til voru kallaðir í nefndir þessar - utan einn. Sómapiltinn knáa - skærasta geisla ljósvakans. Að lokum: Et tu Gísli Marteinn!??

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182