Lesbók04.12.02 — Enter

Hér segir af miðaldra, heldur seinheppnum njósnara, sem starfar fyrir bresku leyniþjónustuna, MI6. Hann er eitthvað að paufast í Norður-Kóreu í upphafi myndarinnar þar sem hann kemst upp á kant við þarlend yfirvöld og er hnepptur í varðhald. Hann losnar þó að lokum, en telur sig eiga harma að hefna og gengur myndin að mestu út á vægðarlausa leit hans að kvölurum sínum.Persóna njósnarans, James Bond, var bara ansi hreint vel heppnuð. Leikarinn Pierce Brosnan, lék hann af yfirvegun - rétt eins og hann hafi aldrei gert annað. Það er ekki oft sem maður sér þetta fullorðna menn leika hetjur og sjaldan eða aldrei eru þeir jafn glansandi snyrtilegir við barsmíðar og almennan óskunda. Sérlega vönduð persóna, full breyskleika og slæmra siða sem gaman væri að sjá oftar í kvikmyndum af þessari gerð.Eltingarleikur Bonds við samviskulausa kóreumennina berst meðal annars til Íslands, nánar til tekið að Jökulsárlónum. Þar höfðu kvikmyndagerðarmennirnir, eftir því sem ég best fékk séð, klambrað upp nokkuð nákvæmum eftirlíkingum af Kópavogskirkju og Perlunni, hlið við hlið. Það var vægast sagt áhugavert að sjá glæsibifreið Bonds ekið þangað eftir hringveginum, þó eflaust hafi tækjaspekúlant MI6 þurft að lappa upp á fjöðrunina að þeim gáskaleik loknum.Allt þetta tilstand er efalítið hin besta landkynning þó svo pelsanotkun íslensku þjóðarinnar sé heldur ofgert. Þarna spólaði sumsé njósnarinn knái dágóða stund á jökulísnum og fékk sér meir að segja svalandi sundsprett í jökulköldu lóninu - nokkuð sem ekki margir hefðu leikið eftir. Myndin var prýðileg skemmtun og stendur persónan James Bond þar tvímælalaust uppúr sem frábærlega vel heppnuð tragikómísk fígúra - hver veit nema Die Another Day 2 verði einhvern tíman að veruleika?

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182