Lesbók22.10.02 — Dr. Herbert

Fátt er jafn hressandi hér í Lundúnarborg og að fá sér kvöldgöngu, ekki síst í þokudrunginni rigningunni, líkt og í gærkveldi. Leið mín lá að þessu sinni um Westminster, framhjá Benjamín klukku og humátt að Auga borgarinnar, en svo nefnist Parísarhljól forljótt sem reist var hér um aldarmót. Mætti á miðri leið ungum manni sem innti mig eftir því hvort ég ætti ekki skiptimynt. Ég svaraði drengnum játandi, enda hafði ég meðferðis bjórmynt skyldi ég rekast á knæpu. Falaðist kauði þá eftir ölmusu, kvaðst vera heimilislaus. Heimlisleysi mun vera vinsæl iðja hér í borg og ku gefa ágætlega af sér. Fór svo að lokum að við deildum bjór og ræddum saman um heima og geima. Hafði þessi ágæti maður verið bissnessmaður um árabil og rekið hér margmiðlunarfyrirtæki með afleitum árangri. Kunni hann betlarastarfinu mun betur. Sveiganlegur vinnutími, og auk þess betur launað. Kannski eitthvað sem maður ætti að íhuga. Kvaddi þennan nýfengna félaga minn íhugull og utanviðmig. Gisti nóttina í lystigarði innanum róna og perverta þar sem ég hafði eitthvað misreiknað fjarlægðirnar og bjórmagnið sem ég innbyrti.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182