Lesbók25.09.02 — Kaktuz

Myglar og Númi komu til mín í gærkvöldi og drukku hjá mér kvöldkaffi. Ég sjálfur drekk aldrei neitt nema flóaða mjólk eftir kl átta á kvöldin. Þetta var yndisleg kvöldstund þar sem rædd voru ýmis mál, allt frá alþingiskosningum til bragfræði. Það er langt síðan við höfum hist svona fjölskyldan, alltof langt. Á seinni árum höfum við verið svo niðursokknir að okkur hefur ekki gefist tóm til að rækta böndin sem drógu okkur saman fyrir öllum þessum árum. Myglar las upp úr óútkominni bók sinni um neðansjávarhella og Númi fór með brot úr Sinnepsrímum Hafsteins Harðarsonar. Sjálfur sat ég og hlustaði, stolltur faðir og reyndi að benda þeim á hvar betur mætti fara.

Svo sannarlega yndileg kvöldstund og gaman að sjá hvað strákarnir dafna vel undir minni handleiðslu.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182