Lesbók02.08.02 — Spesi

Mikið var þetta erfiður dagur í gær. Alltaf þykir mér jafn erfitt að koma úr fríi og dagurinn í gær var engin undantekning. Félagar mínir létu loksins sjá sig hér á skrifstofunni í gærkveld og komu þeir að mér þar sem ég söng hástöfum með uppáhalds Stefán Íslandi plötunni minni.

Upphófst þá með okkur félögum mikil gleði og gnístran tanna og er ég enn að súpa seyðið af seyðinu er ég saup í boði Kaktuzar í gær. Mikið var það bragðgott.

En viti menn! Helgin og Uglir 2002 á næsta leiti. Ég verð Indriða töframanni innan handar mestan part helgarinnar og geri ég ráð fyrir að það verði ansi mikið starf. Mikið verður þetta allt saman gamansamt samt.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182