Númi kom hingað áðan, klyfjaður af alls kyns lyfjum. Hann sagðist hafa verið hjá lækninum. Mér sýnist hann ætla út í lyfjasmásölu.
Um leið og hann leit undan hófum við hinir náttúrulega að gramsa í safninu, en það vildi ekki betur til en svo að Enter andaði óvart að sér einhverju hvítu dufti sem var í einum pokanum. Nú er hann byrjaður að rausa um hvað hann sé frábær og merkilegur og hamrar eins og óður sé á lyklaborðið, eins og hann ætli að skrifa heila bók á einum degi.
En hvað er þetta? Svona hugguleg lítil tafla með mynd af fiski. Þetta hlýtur að vera einhvers konar lýsisvítamín. Ætli ég fái mér ekki eina, bara til öryggis.