Pistlingur – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Þær raddir verða æ meira áberandi í samfélagi voru sem kalla á opinbera stjörnusambandsstöð, aðgengilega og umframallt boðlega íslenskri þjóð og stjarnlægum verum. Þeir stjarntengiliðir ("miðlar") sem náð hafa tengilotum við astralvörpunga ("framliðna") á framandi stjörnum hafa hingað til þurft að starfa í skúmaskotum og kjöllurum víðsvegar um landið.

Nú munu standa yfir framkvæmdir við verslunarmiðstöð í "Smáranum" í Kópavogi. Þetta er reisulegt hús, með fjölmörgum kvistum og allmyndarlegri trjónu að framanverðu. Það sem almenningur veit hinsvegar ekki er að húsið líkist verulega teikningum dr. Sigvalda Ben. af "Opinberri stjörnusambandsstöð hins íslenska ríkis", sem birtust í grein hans "Dulskipulag astralsviðsins" í tímaritinu "Nýalstíðindum" 1956. Mín tillaga er sú, sem föðurlandsvinar og stjarntengimeistara af þriðju gráðu (M-357L) að hús þetta fái nýtt hlutverk; hlutverk kosmískrar samtengingar og samruna gjörkosmískra tengibreytna á öllum plönum allífsins.

Góðar stundir.

Nú geturðu sent Núma tölvupóst!

Lesbók frá fyrri tíð

Loksins! Í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins Íslands verður leikið og sungið alvöru köntrí, þegar Köntrísveit Baggalúts stígur á svið hins magnaða tónleikahúss Grand rokk í kvöld. Verður þar leikið efni af nýútkomnum hljómdiski sveitarinnar Pabbi þarf að vinna ásamt fáeinum sígildum köntríslögurum eftir þekktustu köntrílistamenn sögunnar. Lög eins og: Heartbreak Rodeo með Gustav Flint, Sorrow Saloon með Emerald Broters, Lonely Wagon með Silverland Pony og fleiri.

Dúettinn Sviðin jörð hitar upp og leikur hressilega tónlist til að skjóta sig við!

Hljómleikarnir hefjast um miðnætti og kostar skitnar þúsund krónur inn. Lifi köntríið, lifi sannleikurinn, lifi lífið!

Númi Fannsker 16/9/05
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Saga
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 87, 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA