Þetta er dæmigert ástand. Myglar er farinn í frí og skilur nýju stimpiljukkurnar okkar eftir í reiðileysi á borðinu sínu við hliðina á gömlu brauðristinni sem hann hefur verið að rífa í sundur. Númi hefur ekki sést hér í langan tíma og Spesi stendur þarna og talar við ískápinn.
Í dr. Herberti hefur enginn heyrt svo vikum skiptir og Kaktuz... jú hann var að sýna mér nýja stólinn sinn, sem hann keypti um helgina! Hvers á ég að gjalda að þurfa að vinna við svona aðstæður?