Ég hefi áhyggjur af Núma. Hann er búinn að loka sig inni í ísskáp skrifstofunnar og neitar að koma út, segist vera að tala við einhvern Egil. Svo muldrar hann eitthvað um geirfugla og tímaflakk. Ég held að hann hafi komist í sameindaútfrymisverpilinn hans Myglars. Vesalings maðurinn.
Þá hefi ég oft að undanförnu fengið á tilfinninguna að ég sé farinn að endurtaka sjálfan mig. Ekki líst mér á það.