Nú var ég að ranka við mér rétt í þessu og gerði ráð fyrir að enn væri laugardagur. En ónei! Þriðjudagur sagði móðir mín við mig þegar hún færði mér kaffi og volg rúnstykki hingað í dívaninn minn á ritstjórnarskrifstofunni. Eitthvað rámar mig nú í mikið húllumhey hér á skrifstofunni á föstudaginn, man samt ekki alveg um hvað málið snerist. Ég verð að fara að minnka við mig drykkjuna; best að ég haldi mig við bjór eingöngu.
Neisko ég hefi látið raka hjarta á bakið á mér! Hmmmm!