Þetta var prýðisgóð helgi. Ég hitti vin minn Niels Hansen frá Kaupmannahöfn á laugardaginn. Við fengum okkur púrtvín, reyktum prýðilegt píputóbak frá Jómfrúareyjum og tefldum fram á kvöld. Hann er lítill taflmaður og ég mátaði hann sextán sinnum, en einu sinni gerðum við jafntefli. Við brugðum okkur að því loknu á kvöldvöku hjá spilafélaginu Gosum. Það var ljóta samkoman, mikið um drykkju. Þar hitti ég þó þá Enter og Spesa, þeir voru útúrdrukknir og illa til reika. Asnar.