Lesbók13.03.02 — Enter

Hér er allt með rólegasta móti. Spesi greyið er eitthvað lasinn, sem er miður þar sem hann á að syngja með kór kattavina á morgun. Myglar er í ofsóknaræði að rótast gegnum skjöl Núma, sem hann heldur fram að hafi hnuplað frímerkjasafninu sínu.

Svo skreið hann Indriði Greipsson hér inn á ritstjórn í morgun og skilaði af sér leiklistarrýni, hann höfum við ekki séð í marga mánuði. Enda maðurinn örlagabytta og eymingi.

Sjálfur ætla ég að taka það rólega það sem eftir lifir dags. Hugsanlega að bregða mér á nuddstofu ellegar að fá mér sundsprett í Nauthólsvíkinni.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182