Ekki er nú öll vitleysan eins. Nú vill Kaktuz bjóða mér upp á DNA-próf; "bara svona að gamni". Hann er nú ekki alveg heill kallgreyið. Ég skil ekki alveg þennan skyndilega anatómíska áhuga hans á mér, hann spurði mig einmitt í hvaða blóðflokki ég væri í gærmorgun. Ætli maður láti þetta ekki eftir kallinum, hann er jú einu sinni fermingarbróðir minn.