
Loksins man ég eftir henni. Ţessari á myndinni hjá NF....Hún ćtlađi aldrei ađ láta mig í friđi greyiđ, elti mig eins og húsbóndalaus köttur......ef hún hefđi ekki veriđ svona fjandi ágeng hefđi ég sennilega vorkennt henni. Og allt var ţetta útaf einni kynsćlu nótt eftir ball í gamla Gúttó............hmmmmmm....hvađ ćtli hann Númi sé orđinn gamall? O
Er ekki komiđ nóg? Er ţetta ekki fyrir lifandis löngu orđiđ gott? Er ekki hćgt ađ hleypa mannrćflunum heim til sín aftur? Ţeir ţrá ekkert heitar, Keflavik-Iceland er ţeirra Síbería. Ömurđargaleyđa dauđans.
En nei, nú loks ţegar fćri gefst á ađ sópa öllu heila klabbinu af skerinu - ţegar verjurnar sjálfar eru komnar međ upp í háls af ruglinu. Ţá koma Íslendingar skríđandi yfir hafiđ međ grátstaf í kverkum og tungu í skóhćđ - og heimta ađ skjótibyssukallarnir verđi um kyrrt.
Fyrr má nú vera undirlćgjuhátturinn.
Ţađ vita ţađ allir ađ pastelblokkirnar ţarna í Reykjaneshrauninu hafa ekkert ađ gera međ varnir Íslands. Hversu oft hafa ţessi útlćgu Kanagrey ţurft ađ koma landi og ţjóđ til bjargar á ţessari hálfu öld sem ţeir hafa mátt hírast ţarna? Aldrei.
Hversu oft hafa hinir fjölmörgu óvinir og óvildarmenn ţjóđarinnar gert sig líklega til ađ ráđast hér upp strandir međ djöfulgangi og skćrum? Aldrei.
Og er ţađ máske vegna veru varnarliđsins hér? Nei. Ţađ er vegna ţess ađ ţađ dettur engum heilvita hefndarverkamanni í hug ađ paufast hingađ í grenjandi rigningu og skítakulda til ţess ađ ... tjah, ná Norrćna húsinu á sitt vald.
Ef ţađ eru í raun og sann einungis viđskiptasjónarmiđ sem ráđa ţessum sífelldu og slepjukenndu sleikjum íslenskra yfirvalda í bakgarđa bandarískra stjórnvalda, vćri ţá ekki nćr ađ opna bara eina dálítiđ krassandi hergagnaverksmiđju ţarna suđurfrá. Ţađ vćri í ţađ minnsta heiđarlegra - og um leiđ vćri óţarft ađ skilgreina mosaflćmiđ umhverfis sem ameríska nýlendu, eins og nú er raunin.
Svei ţví.